16.05.1949
Efri deild: 110. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 728 í B-deild Alþingistíðinda. (1111)

1. mál, togarakaup ríkisins

Gísli Jónsson:

Þessi brtt. snertir að verulegu leyti hag ríkissjóðs. Nú er hæstv. fjmrh. ekki hér viðstaddur, hvorki til að segja álit sitt um brtt. né greiða atkv. um hana, svo að ég tel, að honum sé nokkurn veginn sama um það, hvort hún verður samþ. eða ekki. Þess vegna sit ég hjá við þessa atkvgr.