16.05.1949
Neðri deild: 111. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 812 í B-deild Alþingistíðinda. (1240)
23. mál, meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra
Menntmrh. (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Ég gleymdi að geta þess áðan, að leiðrétta þarf 8. gr. frv. Ber ég því fram skrifl. brtt. þess efnis, að í stað orðanna „sbr. lög nr. 33 12. febr. 1945, um breyt. á þeim lögum“ í 3. málsgr. 8. gr. komi: og síðari breytingum á þeim lögum.
Út af því, sem hv. þm. A-Húnv. sagði, vil ég taka það fram, að ég mun ekki ræða Kaldaðarnesmálið í þessu sambandi, en ef þarf að ræða það, þá er bezt að gera það óháð þessu máli.
Þá vil ég einnig taka það fram, að ef mín brtt. verður samþykkt, þá hefur það engin áhrif á fjárl. 1949. Auðvitað geta verið skiptar skoðanir um það, hve miklu fé eigi að verja í þetta, en ég hygg þó, að þeir, sem á annað borð vilja stuðla að því, að þetta mál nái fram að ganga, telji, að hér sé eins lítils krafizt og hægt er.