12.04.1949
Sameinað þing: 65. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1067 í B-deild Alþingistíðinda. (1424)

42. mál, fjárlög 1949

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Eins og hæstv. viðskmrh. tók fram, var farið fram á það við hv. fjvn., að þessari till. yrði frestað, til þess að tími ynnist til þess að taka afstöðu til hennar m.a. Ég hefði kosið, að samkomulag það hefði náðst, sem óskað var eftir. En ég hef einsett mér að vera með öllum lækkunartill., til þess að takast megi að þrýsta kostnaðinum eitthvað niður, og því segi ég já.