12.04.1949
Sameinað þing: 65. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1070 í B-deild Alþingistíðinda. (1435)

42. mál, fjárlög 1949

Gísli Jónsson:

Þessi þóknun er ákveðin að hæstv. félmrh., og þegar hv. þm. Ísaf. var dómsmrh., hækkaði hann launin. Það var reynt samkomulag við núverandi hæstv. félmrh. um að lækka þetta stórkostlega, en það tókst ekki, og þess vegna varð fjvn. sjálf að meta þessi gjöld. Taldi hún þetta hæfilegt og ég segi því já.