12.05.1949
Sameinað þing: 72. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1098 í B-deild Alþingistíðinda. (1476)
42. mál, fjárlög 1949
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég er hér meðflm. að einni till. á þskj. 704 ásamt hv. þm. Str., hv. þm. Snæf. og hv. þm. V-Ísf., það er um að greiða Svavari Guðnasyni listmálara og Sigurjóni Ólafssyni myndhöggvara 15 þús. kr. byggingarstyrk hvorum. Ég vildi óska þess, að hv. þm. athuguðu mjög vel þessa till. Ég býst við, að þeir, sem þekkja starf þessara manna, verði sammála þessari till. Sigurjón er vafalaust ekki aðeins bezti myndhöggvari okkar Íslendinga, heldur á Norðurlöndum og hefur framleitt listaverk, sem hafa notið eins mikillar viðurkenningar hér heima og á Norðurlöndum eins og nokkur íslenzkur myndhöggvari hefur fengið. Ég býst við, að flestir Íslendingar, sem kynna sér list þessa myndhöggvara, séu stoltir af honum. Þessi listamaður hefur alllengi búið í Kaupmannahöfn og hlotið þar mikla viðurkenningu. Síðan hann kom heim; hefur hann búið í bragga með konu sinni, sem er dönsk að ætt og hefur hlotið mjög mikla viðurkenningu fyrir málaralist. Eru aðstæður hans þarna og vinnuskilyrði hin verstu, þannig að ekki má lengur við svo búið standa. — Jafnframt því, að Sigurjón hefur getað haldið áfram sinni gömlu list, hefur hann sýnt sig að vera jafnvígur að því er snertir hina nýrri listastefnu, þar sem hugmyndafluginu er gefinn laus taumurinn. Ég býst við, að hvernig sem við lítum á slíkt, viljum við stuðla að því, að slíkur listamaður geti fengið góð skilyrði til þess að starfa hér heima hjá okkur. — Við vitum, að það háttar öðruvísi til með málara að koma verkum sínum í peninga. Það hefur verið svo á undanförnum árum, að málarar hafa átt að mörgu leyti hægt með að selja sína vinnu. Margir geta keypt málverk, og það hefur þýtt, að málarar hafa átt tiltölulega hægt með að selja málverk sín. En að því er myndhöggvara snertir er það þannig, að þeir eru í rauninni alltaf að vinna fyrir það opinbera. Það eru svo að segja undantekningar, ef myndhöggvarar geta fengið að vinna eitthvað fyrir einstaka menn. Þess vegna hvílir mikil skylda á því opinbera, ef myndhöggvaralistin á að geta þróazt í einu landi, að sjá svo um, að listamennirnir geti búið við þær aðstæður, að list þeirra líði ekki við það. Ég held því, að flestir alþm. geti orðið sammála um það, að þessi listamaður ætti skilið, að Alþ. veitti honum 15 þús. kr. byggingarstyrk til þess að skapa sér þarna góð vinnuskilyrði.
Þá hef ég einnig lagt hér til, að Svavari Guðnasyni listmálara væri veittur 15 þús. kr. byggingarstyrkur. Svavar er ungur listmálari, sem erlendis hefur hlotið allmikla viðurkenningu og eftir því sem mér hefur verið sagt af þeim, sem meira vit hafa á þessari list en ég, einnig fengið góða viðurkenningu hér heima. Fyrsta sýning hans hér hefur, eftir því sem mér hefur skilizt, tekizt mjög vel. Þessi maður hefur, eins og svo margir af listamönnum okkar, búið við mjög slæmar aðstæður. Í sumar fékk hann inni hjá einum kunningja sínum úr hópi íslenzkra listamanna, en hefur annars í rauninni hvergi höfði að að halla. Og þó að þetta sé nokkur upphæð, 15 þús. kr., er hún ekki svo mikil, að hún hafi nokkur áhrif á afgreiðslu fjárl. Ég vænti þess því, að þm. sjái sér fært að samþ. þessar tillögur.