14.05.1949
Sameinað þing: 73. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1154 í B-deild Alþingistíðinda. (1527)

42. mál, fjárlög 1949

Páll Zóphóníasson:

Það hefur sýnt sig, að fyrrverandi ríkisstj. svaf á gefnum loforðum og að núverandi stj. gerir það líka, og það er þess vegna nauðsynlegt að launa vökumann, sem sífellt minni hana á loforð sín, þar til hún man þau, og segi ég því já.