14.05.1949
Sameinað þing: 73. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1158 í B-deild Alþingistíðinda. (1550)

42. mál, fjárlög 1949

Hermann Jónasson:

Ég vil í höfuðatriðum vísa til grg. hv. þm. A-Sk. Það er fyrirsjáanlegt, að frekari kauphækkanir eru ekki nema augnablikshagur fyrir nokkrar stéttir, sem leiða af sér hrun, sem kemur yfir þessar stéttir eins og aðrar. Með tilvísun til grg. hv. þm. A-Sk. og hv. þm. V-Húnv. segi ég því nei.