11.11.1948
Neðri deild: 13. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1282 í B-deild Alþingistíðinda. (1581)

63. mál, lántaka handa ríkissjóði

Frsm. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Ég vil fylgja málinu eftir fyrir hönd fjhn. Því er nú svo farið, að málið þarf skjótrar afgreiðslu, og enda þótt þm. hafi óbundnar hendur í þessu máli, er það sameiginleg ósk, að málið gangi fljótt í gegnum þingið, helzt í dag. Og vil ég beina því til forseta, að hann hraði málinu sem mest.