11.12.1948
Efri deild: 30. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1350 í B-deild Alþingistíðinda. (1686)

80. mál, aðstoð til síldarútvegsmanna

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Eins og d. er kunnugt, var þetta mál afgr. til sjútvn. Ed. í nótt, og tók n. það þegar fyrir á fyrsta fundi sínum. N. hefur einnig haldið fund um málið í morgun, og hafa verið til umr. 3 brtt., sem komið hafa fram við frv. Má segja, að nokkurn veginn sé samkomulag um tvær af þessum till., en um þá þriðju hefur ekki náðst samkomulag, og hefur n. því ekki getað skilað nál. fyrir þennan fund, en meiri hl. hennar er sammála um að láta málið ganga þannig til 3. umr. og taka það fyrir milli 2. og 3. umr. og gefa þá út nál., annaðhvort sameiginlega eða hvor hluti fyrir sig.