14.12.1948
Efri deild: 32. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1374 í B-deild Alþingistíðinda. (1708)
80. mál, aðstoð til síldarútvegsmanna
Björn Kristjánsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að fara að skattyrðast við þm. Barð., þó að hann sendi mér hnútur. Það er eins og vant er hjá þessum hv. þm., hann getur yfirleitt aldrei talað svo í nokkru máli, að hann ekki sendi persónulegan skæting um leið. Ég get fullvissað hann um, að ég hef engar fyrirskipanir frá mínum flokki um afstöðu mína, hvorki í þessu máli né öðrum. — Hv. 6. landsk. telur, að ýmis ákvæði þessa frv. torveldi áframhaldandi útgerð, en að brtt. sín og þm. Barð. geti mikið bætt úr. Ég tel hins vegar, að þessi brtt. hafi ekki neina þýðingu og að röksemdir og ræður flm. byggist á einum allsherjar misskilningi á málinu.