16.12.1948
Neðri deild: 38. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1382 í B-deild Alþingistíðinda. (1758)
104. mál, ráðstafanir vegna dýrtíðar og erfiðleika atvinnuveganna
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):
Mér virtist hv. þm. Siglf. vera reiður eða svona ergilegur, og var hann að tala um ósannindi í sambandi við framkomu hans flokks síðasta mánuðinn, sem fyrrv. ríkisstj. sat að völdum. Ég held, að það, sem hann lýsti sem ósannindum og vildi halda fram, að ekki hefði verið, það líktist dálítið því, sem haft er eftir dönskum þingmanni um árið, þegar því var haldið að honum, að þetta og þetta væri staðreynd. Þá sagðist þessi þingmaður bara neita staðreyndum. Ég er hræddur um, að þessi ósannindayfirlýsing hv. þm. Siglf. eigi eitthvað skylt við það, að það sé sama sem og að segja: „Ég neita staðreyndum!“ Annars hefur fyrr á þessu þingi borið á góma „strækuna“, sem þessir félagar settu á ríkisstjórnarstörfin þetta fræga haust. Ég man ekki betur, en að þeir hafi sagt frá því opinberlega, af hverju þeir hafi gert hana. Það er ekki einu sinni svokallað opinbert leyndarmál, það er alveg opinbert og þýðir þess vegna ekki fyrir hv. þm. Siglf. að vera að reisa sig og tala um ósannindi. Fyrir sitt leyti þá gerði þessi flokkur á sínum tíma það, sem hann gat, þegar ókyrrðin hljóp í þeirra blóð, til þess að gera stjórnina óstarfhæfa. Um það, sem hann að öðru leyti sagði, ætla ég ekki að fjölyrða. Það á sjálfsagt fyrir mér að liggja að fá vitnisburð fyrir það, sem ég hef gert, bæði slóðaskap og annað. Það getur glatt þennan hv. þm., að dómar um mín störf eru smátt og smátt að birtast í einu stjórnarblaðanna. Og skal þetta honum til huggunar sagt. Ég er ekkert kvikusár fyrir því, og ég býst við, að það fari um mig eins og aðra, að sumt sé satt og sumt ósatt, sem um þá er sagt. En þau almennu rök, sem ég færði fyrir þeim töfum á að afgreiða. fjárl. nú, samanborið við það sem áður hefur verið, standa algerlega óhögguð þrátt fyrir þessa gusu hv. þm. Siglf.