15.12.1948
Efri deild: 34. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1386 í B-deild Alþingistíðinda. (1783)

102. mál, ráðstafanir í sambandi við skilnað Íslands og Danmerkur

Forseti (BSt):

Þetta er nú 1. umr. málsins, og ég býst við, að hægt verði að fá þessar upplýsingar á seinna stigi málsins. En ef hv. þm. heldur fast við það að fá þær upplýsingar nú við þessa umr., mun ég ekki sjá mér annað fært en að taka málið af dagskrá. (HV: Ég ætla að lifa í voninni, að þær upplýsingar komi síðar.)