16.12.1948
Efri deild: 39. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1387 í B-deild Alþingistíðinda. (1786)

102. mál, ráðstafanir í sambandi við skilnað Íslands og Danmerkur

Forseti (BSt):

Of skammt er liðið frá 1. umr. málsins. Enn fremur liggur hér fyrir skrifl. nál. um frv. og er á þessa leið: „Allshn. hefur athugað frv., og leggja undirritaðir nefndarmenn til, að frv. verði samþykkt. Alþingi, 16. des. 1948. Þorst. Þorsteinsson frsm., Lárus Jóhannesson fundaskr., Hermann Jónasson.“ Til þess að málið geti komið hér til umr. nú, þarf að leyfa afbrigði um þessi tvö atriði.