10.02.1949
Neðri deild: 62. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1442 í B-deild Alþingistíðinda. (1906)

124. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1949

Pétur Ottesen:

Ég ætlaði bara að vekja athygli á því, að hér er farið kynlega að. Fyrir nokkrum mínútum var samþ. hér brtt., þar sem samkomudagur, næsta reglulegs Alþingis er ákveðinn 11. okt. Og þvert ofan í hana og nær í sömu andránni og hún er samþ. kemur hér fram brtt. í þá átt, að gengið sé til baka til 15. sept. Ég geri nú ekki ráð fyrir, að þetta ríði í bága við þingsköp, en þetta er vægast sagt undarlega að farið.