11.02.1949
Efri deild: 58. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1446 í B-deild Alþingistíðinda. (1915)

124. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1949

Gísli Jónsson.:

Herra forseti. Vegna ummæla hæstv. forsrh. áðan skal ég upplýsa, að mér er ekki kunnugt um, að neitt stjfrv. liggi hjá þeim n., sem ég er í. Ég vil spyrja hæstv. fjmrh., hvort rétt sé hermt, það er spurzt hefur til fjvn., að hann hafi sagt í hv. Nd., að afgreiðsla fjárl. væri að kenna n. Ég hefði nú kosið, að orð þessi hefðu heldur verið látin falla hér í þessari hv. d., þar eð ég sem form. fjvn. á hér sæti.