11.02.1949
Efri deild: 59. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1474 í B-deild Alþingistíðinda. (1947)

124. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1949

Páll Zóphóníasson:

Ég hef áður lýst yfir, að ég tel óviðunandi, að Alþingi komi svona seint saman. En sá meiri hluti, sem hér er til staðar, ber auðvitað ábyrgðina, og er bezt, að hann beri hana einn og óskorað. Ég greiði því ekki atkvæði.