13.12.1948
Neðri deild: 33. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1501 í B-deild Alþingistíðinda. (2056)
40. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég minntist á það við 1. umr. þessa máls, að sanngjarnt væri að taka tillit til þessa atriðis, ekki bara hvað tekjuskattinn snertir, heldur líka hvað útsvörin snertir. Að vísu kom það fram við 1. umr., að það mun vera misjafnt, hvaða tillit niðurjöfnunarnefndirnar taka til þessarar eigin vinnu gjaldanda við hús eða íbúð, en í Reykjavík hafa það miklar kvartanir komið fram, að ég tel rétt, að útsvörin verði tekin inn, enda var samkomulag um það í n., að einstakir nm. gætu fylgt brtt.
Þá var það annað atriði, sem ég vildi leggja til, að tekið yrði inn í frv., og það er, að l. nái ekki bara til þeirra, sem unnið hafa sjálfir við húsin, heldur líka til þeirra, sem hafa ekki aðstöðu til að vinna við húsin sjálfir atvinnu sinnar vegna, en hafa í stað þess unnið fyrir peningatekjum umfram venjulegar atvinnutekjur til þess að koma sér upp íbúð. Þá var talað um það í n., hvort hægt væri að láta ákvæði frv. ná lengra aftur í tímann, og mun ég bera fram brtt. um, að það verði gert. Loks tel ég við nánari athugun, að það sé ef til vill réttara, að þessi viðauki komi aftan við 10. gr. í staðinn fyrir 9. gr., en það er formsatriði.
Ég bar þessar brtt. ekki fram við 2. umr., því að ég vildi ekki tefja málið, en ber þær nú fram skriflega. Þar sem þær eru skriflegar og auk þess of seint fram komnar, vildi ég biðja hæstv. forseta að leita afbrigða. Það er rétt, að ég lesi þær upp orðréttar:
1. Við 1. gr. Greinin orðist svo: Við 10. gr. l. nr. 6 1935, um tekjuskatt og eignarskatt, komi nýr stafliður, svo hljóðandi: h) eigin vinnu gjaldanda við hús eða íbúð, sem hann ætlar til eigin afnota, enda sé sú vinna umfram venjulega atvinnu gjaldanda. Samsvarandi frádrátt eftir mati skattanefndar (skattstjóra) má veita þeim, sem er að byggja hús eða íbúð til eigin afnota, sem ekki hefur aðstöðu atvinnunnar vegna til þess að vinna við það sjálfur, en hefur þess í stað unnið fyrir peningatekjum umfram venjulegar atvinnutekjur. Ef gjaldandi selur hús eða íbúð, sem þannig er ástatt um, innan 5 ára, skal honum reiknuð hin frádregna vinna eða tekjur til skattskyldra tekna og skattálagningar, þó svo, að þeim skal deilt niður á jafnmörg ár og þeirra var aflað á. Nánari reglur um þennan frádrátt setur ráðherra með reglugerð.
2. Við 2. gr. Greinin orðist svo: Tekjuskatt álagðan árin 1944–48 skal ákveða að nýju í samræmi við ákvæði 1. gr., ef skattgreiðandi krefst þess innan 6 mánaða frá gildistöku þessara laga.
3. Á eftir kemur ný grein (3. gr.), svo hljóðandi: Ákvæði 1. og 2. gr. laga þessara gilda um álagningu útsvara, og er bæjarstjórnum og hreppsnefndum skylt, ef útsvarsgjaldandi krefst þess innan 6 mánaða frá gildistöku laganna, að lækka útsvör álögð árin 1944–48 samkvæmt ákvæðum 1. og 2. gr. laganna.