14.02.1949
Neðri deild: 64. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1524 í B-deild Alþingistíðinda. (2101)

127. mál, sala á steinolíu, hráolíu o.fl.

Frsm. (Finnur Jónsson):

Allshn. flytur þetta frv. eftir beiðni atvmrh. Þær breyt., sem felast í því, stafa af því, að þau ákvæði, sem eru í núgildandi l. um þetta efni, eru sett áður en almennt var farið að afgreiða þessar vörur á sérstökum mælum eða tönkum. Ég skal svo ekki hafa aðra framsögu fyrir þessu, þar sem ég sé, að þm. eru farnir að ókyrrast í deildinni. En ég vænti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr.