15.11.1948
Efri deild: 15. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í B-deild Alþingistíðinda. (212)

66. mál, bifreiðaskattur o.fl.

Ásmundur Sigurðsson:

Herra forseti. Það verða aðeins örfá orð. Þessi skattur var settur með brbl. 1948, og var svo gert ráð fyrir, að þessar nýju reglur um bifreiðaskatt væru aðeins í gildi stuttan tíma. Ég hafði áður flutt till. varðandi þetta mál, en þær tillögur liggja enn til athugunar hjá fjhn., og ég leyfi mér að beina því til n., að eðlilegra er að ganga frá þessum tveim málum í einu. Ef þær till. yrðu samþ., væri frv. þetta óþarft.