03.03.1949
Efri deild: 69. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1541 í B-deild Alþingistíðinda. (2197)

126. mál, lax- og silungsveiði

Gísli Jónsson:

Eftir að hafa heyrt undirtektir hv. frsm., óska ég ekki eftir því, að málinu verði frestað. Ef landbn. hefur ekki áhuga á því að koma því þannig fyrir, að hægt sé að auka þetta starf, þá situr sízt á mér. Ég vildi bara benda á þetta og mun ekki tefja tímann frekar, en ég vænti þess, að þeir, sem ekki vilja stuðla að því að útvega þessar tekjur, standi með fjvn. í sparnaðinum, sem hún leggur til.