09.11.1948
Efri deild: 10. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í B-deild Alþingistíðinda. (22)

26. mál, happadrættislán ríkissjóðs

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Herra forseti. Það hefur komið fram hér í umr., að ekki er ætlazt til þess, að útsvarshlífð verði nema í eitt skipti, eins og ætlazt er til, að tekjuskattur falli niður í eitt skipti. Um þetta held ég að ekki geti ráðið neinn efi. Ef ég man rétt, eru ákvæðin um þetta í l. um happdrætti Háskóla Íslands hliðstæð því, sem hér er gert ráð fyrir.