18.12.1948
Efri deild: 41. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í B-deild Alþingistíðinda. (225)
66. mál, bifreiðaskattur o.fl.
Frsm. (Guðmundur Í. Guðmundsson):
Herra forseti. Þegar mál þetta var hér til 2. umr., óskaði ég eftir því við hv. flm. brtt. á þskj. 185 og 202, að þeir tækju þær aftur til 3. umr., til þess að fjhn. gæti athugað þessar brtt. nokkuð og rætt þær á fundi sínum. Fjhn. hefur haldið einn fund síðan 2. umr. um þetta mál var lokið í gær. Var þá þetta mál og brtt. þessar tekið fyrir. Eftir að nm. höfðu rætt þessar brtt., var komizt að þeirri niðurstöðu, að fjhn. sem heild hafi ekki neinar till. fram að bera í málinu umfram það, sem kemur fram í hennar nál., og vísar hún til sinna till. þar. Hins vegar óskuðu nm. sér að hafa óbundnar hendur í sambandi við þessar brtt. og aðrar, sem fram kynnu að koma. En í heild var till. meiri hl. fjhn. sú, að frv. væri samþ. eins og það liggur fyrir, og vil ég leyfa mér að vísa til þess hér.