28.04.1949
Efri deild: 90. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1571 í B-deild Alþingistíðinda. (2300)

148. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Forseti (BSt):

Hér er ekki hv. frsm. fjhn. staddur. Hún hefur nú eigi þetta mál til meðferðar, en kæmi væntanlega til með að fjalla um það, ef frv. því, sem hér liggur fyrir, væri steypt saman við 7. dagskrármál (196. mál), og sé ég mér ekki annað fært, en láta atkvgr. ganga um málið. Hér er komin till. um, að 1. dagskrármáli sé steypt saman við frv., sem er 7. dagskrármál. Ég get ekki tekið það til greina, nema tekið sé undir þetta af hv. n.