03.05.1949
Efri deild: 93. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1623 í B-deild Alþingistíðinda. (2396)

204. mál, einkasala á tóbaki

Páll Zópóníasson:

Ég skil þetta frv. sem einn lið í till. ríkisstj. til að koma fjárlagafrv. saman. Að vísu hefði ég heldur kosið að geta séð allar till. í þá átt í heild og tel óheppilegt að koma með þær í smábútum. En þrátt fyrir þennan ágalla greiði ég atkv. með þessu frv. og segi já.