22.04.1949
Neðri deild: 90. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1642 í B-deild Alþingistíðinda. (2475)
164. mál, orkuver og orkuveitur
Frsm. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Það er nú eins ástatt og síðast, þegar þetta mál var tekið hér fyrir, að hæstv. atvmrh. er ekki viðstaddur, og óska ég því eftir, að umr. verði ekki haldið áfram fyrr, en hann getur mætt, þar sem ég þarf að ræða við hann um viss atriði og óska eftir svörum við þeim frá honum. Þætti mér því gott, ef athugað væri, hvort hæstv. ráðh. væri hér í húsinu, svo að hann gæti verið við umr.