08.04.1949
Neðri deild: 88. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1680 í B-deild Alþingistíðinda. (2575)
100. mál, jeppabifreiðar
Jón Sigurðsson:
Herra forseti. Hv. þm. Ísaf. (FJ) hefur boðað þarna brtt., sem ég hef nú heyrt lýst. Þetta er náttúrlega ekki neitt stórt atriði í málinu., hvorki til né frá. Eins og ég gat um við 2. umr., gerðum við ráð fyrir, að þarna kæmi til greina sama og enginn kostnaður. Svo var það síðast, að starfsmenn Búnaðarfélags Íslands unnu að þessu án þess að taka nokkra sérstaka borgun fyrir það, og ég býst við, að það mundi verða eins nú og sömuleiðis hvað snertir Stéttarsamband bænda, svo að þetta skiptir engu. Ég hefði kunnað bezt við að hafa þetta atriði eins og það er í frv., því að ég býst ekki við, að þetta muni neinu til eða frá.