11.05.1949
Neðri deild: 106. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1744 í B-deild Alþingistíðinda. (2683)

207. mál, bifreiðaskattur o.fl.

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson):

Verðlagseftirlitið á að hafa í hendi sér, hvert benzínverðið er. Í trausti þess, að það leyfi ekki meiri hækkun á benzínverðinu, en brýn nauðsyn krefur, segi ég nei. Ég vil ekki rígbinda það á þennan hátt.