17.12.1948
Neðri deild: 42. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í B-deild Alþingistíðinda. (278)

107. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Ég skýt því til hæstv. forseta vegna nauðsynjar á að afgreiða þetta frv. sem allra fyrst, að hann taki málið fyrir á næsta fundi, sem nú hefur verið boðað til. Mér skilst, að meiri hl. n. athugi frv. til 3. umr. og komi þá fram með brtt. sínar, og geta þá komið fram brtt. bæði frá meiri hl. og minni hl. hennar. En ég álít, að tíminn sé svo dýrmætur, að nú megi engan tíma missa, enda hafði forseti ekki ætlað sér það.