21.02.1949
Neðri deild: 68. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1805 í B-deild Alþingistíðinda. (2799)

141. mál, iðnfræðsla

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Það er rétt, sem hv. 6. þm. Reykv. (SigfS:) tók fram um frv. til l. um iðnskóla. Þetta frv. hefur verið til athugunar í menntmrn. og því rn., sem fer með iðnaðarmál. En nú er þessum málum þannig komið, að ég geri ráð fyrir því, að þetta frv. komi bráðum fram í þinginu.