09.11.1948
Efri deild: 10. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í B-deild Alþingistíðinda. (28)

26. mál, happadrættislán ríkissjóðs

Gísli Jónsson:

Ég vildi aðeins spyrja, úr því að þessi brtt. er komin fram, hvort hugsunin sé, að heimilt sé að leggja á eignarútsvar þegar á fyrsta ári. Það held ég, að hæstv. fjmrh. hafi aldrei hugsað sér. Ef þessi brtt. er samþ., sé ég þó ekki annað en heimilt sé að leggja á eignarútsvar þegar á fyrsta ári, sem numið getur 6%.