11.10.1948
Sameinað þing: 0. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í B-deild Alþingistíðinda. (2859)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Herra forseti. 1. kjördeild hefur haldið fund og athugað það eina kjörbréf, sem lá fyrir henni til athugunar, þ.e. kjörbréf Björns Ólafssonar. Hefur öll kjördeildin, eftir að hafa athugað bréfíð, orðið sammála um að mæla eindregið með því, að kjörbréfið verði tekið gilt og þm. taki hér sæti á Alþingi.