03.12.1948
Sameinað þing: 24. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2080 í B-deild Alþingistíðinda. (2937)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl
Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :
Herra forseti. Ég vil aðeins gera stutta athugasemd varðandi þá staðhæfingu hv. 2. þm. Reykv., að við höfum orðið fyrir kúgun af ákveðnu stórveldi. Þetta er rangt. Það var einungis farið fram á ákveðin réttindi með samningum, en engri kúgun beitt. Og við Íslendingar höfum ekki sætt neinni kúgun frá því stórveldi né öðrum. — Hins vegar er ekki hægt að neita því, að stórveldi fara misjafnlega að gagnvart smáþjóðum. Dæmi eru kunn af lítilli þjóð og hins vegar stórveldi, sem tók það með ofbeldi, sem það fékk ekki framgengt hjá henni með samningum. Og það er slík stefna, sem Íslendingar geta aldrei staðið hlutlausir gegn.