03.12.1948
Sameinað þing: 24. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2080 í B-deild Alþingistíðinda. (2938)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég vil benda á, að umrætt stórveldi fór hér fram á herstöðvar til 99 ára, og þó að styrjöldinni væri lokið, hélt það áfram að hafa hér her, og það var ein aðalforsenda þeirra manna, sem gerðu Keflavíkursamninginn, að með því móti einu fengjum við því framgengt, að herinn færi burt, og var talið, að hann mundi sitja áfram í trássi við gerða samninga, ef ekki væri orðið við kröfum þessa stórveldis.