14.03.1949
Neðri deild: 80. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2090 í B-deild Alþingistíðinda. (2959)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Þessi síðasta ræða 2. þm. Reykv. gefur lítið tilefni til andsvars, því að hún er sama efnis og ræða þm. Siglf. Mig gildir einu, hvaða skýringar 2. þm. Reykv. gefur á utanferð ráðherranna, því að ályktanir og skýringar þessa þm. og flokksbræðra hans eru á þá leið, að það tekur enginn mark á þeim.