13.12.1948
Neðri deild: 33. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2096 í B-deild Alþingistíðinda. (2978)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Sigurður Kristjánsson:

Það var víst annan fyrra mánaðar, að útbýtt var frv. um heimild til að flytja inn jeppabifreið. Það eru nú 6 vikur síðan málið fór til fjhn. og ég vildi biðja hæstv. forseta að sjá um, að n. geri skyldu sína varðandi þetta frv.