27.01.1949
Neðri deild: 53. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2097 í B-deild Alþingistíðinda. (2987)
Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.
Sigurður Kristjánsson:
Herra forseti. Ég leyfi mér hér með að lýsa eftir tveimur málum. Annað er frv., sem ég er flm. að, um innflutning á jeppabíl. Því var útbýtt hér 2. nóv. f. á., fór til fjhn. 4. nóv. og er þess vegna búið að vera líklega svona 6 vikur á leiðinni. Hefur ekki spurzt til þess síðan. Ég hygg, að þetta fari að nálgast að vera þingmet. — Hitt málið er frv., sem við hv. 3. þm. Reykv. (HB) erum flm. að, um afnám húsaleigulaganna. Því var útbýtt hér í d. 6. des. f. á. og fór til allshn. 9. des., en síðan hefur ekkert til þess spurzt. Vil ég mælast til þess við hæstv. forseta, að hann athugi hjá form. þessara nefnda, hvað veldur þessum drætti og hvort megi vænta þess, að málin komi inn í d. bráðlega.