14.05.1949
Efri deild: 109. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1887 í B-deild Alþingistíðinda. (3072)

120. mál, menntaskólar

Forseti (ÞÞ):

Ég vil taka fram, að ég treysti mér ekki til að fresta umr. í þetta skipti, en það mun reka að því sama í málinu, því að nú er umr. búin að standa í fulla tvo tíma. En sem sagt, ef ég verð forseti næstkomandi mánudag, skal ég hlutast til um, að hv. frsm. standi hér eða sitji undir ræðu hv. 3. landsk. og sé tilbúinn til svara, eftir því sem föng eru á og efni leyfa.