14.05.1949
Efri deild: 109. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1887 í B-deild Alþingistíðinda. (3074)

120. mál, menntaskólar

Forseti. (ÞÞ):

Ég vil taka fram, að ég mun sitja hér og bíða undir ræðu hv. 3. landsk. til kl. 10, en þá eru komnir 3 klukkutímar og þá mun ég fresta umr., ef d. sýnist, og getur hún þá skorið úr því á næsta fundi, hvernig fara skuli með málið. Annars held ég, satt að segja, að hv. frsm. sé búinn að rekja meginefnið, en annars þoli ég að sitja einn klukkutíma enn.