17.05.1949
Neðri deild: 113. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1900 í B-deild Alþingistíðinda. (3109)

193. mál, skipun læknishéraða o. fl.

Sigfús Sigurhjartarson:

Herra forseti. Ég finn ekki hér í þskj., hvaða breytingum málið hefur tekið í Ed., og ég sé hér hvergi, hvernig málið hefur litið út eftir 3. umr. Ég vildi óska, að þeir, sem eru mér fróðari, gefi mér upplýsingar um þetta, og ef ekki er hægt að fá þær upplýsingar, þá óska ég, að málinu sé skotið til nefndar, svo að hægt sé að athuga það nánar.