17.05.1949
Neðri deild: 113. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1918 í B-deild Alþingistíðinda. (3148)

186. mál, eyðing refa og minka

Frsm. (Jón Pálmason):

Herra forseti. Það er alveg augljóst, að þessu frv. hefur verið breytt mjög í Ed., og ég vil vekja athygli á því, að af því að nú er komið fram undir þinglok, hefur landbn. Nd. ekki haft tækifæri til þess að athuga þessar breyt. og bera saman ráð sín. Ég sé, að ýmis atriði í fyrri hlutanum eru breytt og þar sett inn að verulegu leyti önnur ákvæði. Ég held því, að það sé bezt, að þetta mál biði næsta þings, enda er ekki það langt þangað til þing kemur saman aftur.