19.12.1948
Efri deild: 44. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2167 í B-deild Alþingistíðinda. (3216)
Þingfrestun
forseti (BSt) :
Ég geri ráð fyrir því, að þetta verði síðasti fundur deildarinnar á þessu ári, þó að það geti nú hugsazt, að einhverjar ástæður valdi því, að fundur verði kallaður saman á mánudag.
Ég vil óska öllum hv. þdm., sem heima eiga utan Reykjavíkur, góðrar heimkomu og góðrar ferðar, og öllum hv. þdm. gleðilegra jóla. Til næsta fundar, sem væntanlega verður eftir þingfrestun, verður boðað með dagskrá.