17.05.1949
Neðri deild: 113. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2173 í B-deild Alþingistíðinda. (3239)

Starfslok deilda

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég leyfi mér hér með að tala fyrir hönd allra þingdeildarmanna og þakka hæstv. forseta góðar óskir hans okkur til handa, þakka honum gott samstarf og drengilega fundarstjórn, óska, að við megum hittast heilir aftur og að hæstv. forseti megi eiga gott sumar. Vil ég biðja hv. þingdeildarmenn að standa upp og votta hæstv. forseta þakklæti okkar. — [Dm. risu úr sætum.]