08.11.1948
Neðri deild: 11. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2 í C-deild Alþingistíðinda. (3250)

18. mál, byggingarmálefni Reykjavíkur

Frsm. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Þetta mál var til athugunar í allshn., og held ég, að ekki þurfi að taka neitt frekar fram til viðbótar því, sem hér er fram komið í sögu málsins og grg. Frv. þetta fer fram á lítilfjörlegar breyt., sem miða að nokkru einfaldara fyrirkomulagi, og leggur n. til, að það verði samþ. eins og það liggur fyrir.