10.03.1949
Neðri deild: 78. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 41 í C-deild Alþingistíðinda. (3307)

88. mál, húsaleiga

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Það fer að verða spaugilegur skollaleikur með 3. dagskrármálið á þskj. 160. Það er tekið á dagskrá dag eftir dag og síðan tekið út og svo ekki tekið á dagskrá á milli. Þar sem ég á hér hlut að máli, — ég hef skilað nál., — verð ég að krefjast frekari skýringar á þessu. Ég held, að ég eigi sterka kröfu á því, að málið fái þinglega meðferð.