21.02.1949
Neðri deild: 68. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 102 í C-deild Alþingistíðinda. (3357)

49. mál, dýrtíðarráðstafanir

Hermann Guðmundsson:

Herra forseti. Snemma á þessu þingi — eða þ. 3. nóv. s. l. —lagði ég fram frv. um breyt. á l. nr. 128 29: des. 1947, um dýrtíðarráðstafanir. Því var vísað til n. þ. 12. nóv. Minni hl. skilaði svo nál. þ. 10. des., en meiri hl. hefur eigi enn skilað nál. sínu. Þetta er einkennilegt, og má jafnvel segja, að hann ætli engu nál. að skila. Vil ég, að málið sé þegar í stað tekið fyrir, því að það þolir ekki lengri bið, og ber nauðsyn til, að þingið sýni vilja sinn í þessu máli.