18.12.1948
Neðri deild: 45. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 197 í B-deild Alþingistíðinda. (336)

107. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Áki Jakobsson:

Þar sem ákvæði frv. þessa nægja engan veginn til þess, að útvegurinn komist af stað, en hins vegar er um stórfelldar álögur á almenning að ræða, þá segi ég nei.