03.03.1949
Neðri deild: 74. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 103 í C-deild Alþingistíðinda. (3361)

49. mál, dýrtíðarráðstafanir

Ásgeir Ásgeirsson:

Ég vil biðja afsökunar á því, að ég misskildi það, hvaða mál var spurt um. Þessi skýrsla, sem ég gaf snertandi innflutningslöggjöfina, getur verið svar til þeirra hv. þm., sem spurt hafa um slíkar till.

Viðvíkjandi frv. því, sem hv. 11. landsk. spurði um, er því að svara, að bráðlega mun verða haldinn fundur í n. og tekin ákvörðun um, hvort nál. verður gefið út eða ekki.