18.12.1948
Neðri deild: 45. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 197 í B-deild Alþingistíðinda. (338)

107. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Gylfi Þ. Gíslason:

Ég er að vísu andvígur þeirri tvöföldun á söluskattinum, sem felst í frv., og hefði talið æskilegra, að þess fjár, sem þessari hækkun er ætlað að færa ríkissjóði, væri aflað á annan hátt. En þar sem hér er um að ræða lið í heildarsamkomulagi stjórnarflokkanna um þetta mál, læt ég það ekki ráða afstöðu minni til málsins í heild, en ég tel nauðsynlegt, að það nái fram að ganga, og segi því já.