24.01.1949
Neðri deild: 49. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 154 í C-deild Alþingistíðinda. (3430)

56. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Ásgeir Ásgeirsson:

Ég hef lítið um þetta mál að segja — Meiri hluti n. leggur til, að það verði afgr. með rökstuddri dagskrá. Þessi dagskrá hefði í raun og veru átt að koma til atkv. fyrir þingfrestunina, en það varð ekki, og ekki er komin nein skýrsla um það frá stjórninni, en með því að nú er verið að endurskoða skattalöggjöfina, þá finnst mér, að þetta mál geti legið kyrrt um stund.