19.12.1948
Efri deild: 43. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 225 í B-deild Alþingistíðinda. (351)

107. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Forseti (BSt):

Mér hafa borizt svo hljóðandi skrifl. nál.: [Sjá þskj. 273 og 274.] Enn fremur hafa mér borizt í tvennu lagi skrifl. brtt. frá hv. 4. landsk., og eru þær á þessa leið: [Sjá þskj. 275 og 276.] Loks er brtt. á þskj. 272 frá hv. 1. þm. N-M., sem nú er verið að útbýta hér í d. Þegar hafa verið leyfð afbrigði um, að málið sjálft megi koma fyrir, en auk þess þarf afbrigði um öll þau þskj., sem ég hef nú greint, svo að þau geti komið til meðferðar.